Fotbolti.net
23.08.26 - 20:08
Haraldur Örn Haraldsson

Birnir Snær: Þetta er búið að vera fullmikið

Auglýsing
Birnir Snær: Þetta er búið að vera fullmikið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var góður leikur. Kannski óþarfi þessar síðustu 20 mínúturnar þá lágu þeir aðeins á okkur. Við komum með mikla orku inn í leikinn, það er búið að vera mikil orka á æfingum síðustu daga og við náum að koma því inn í leikinn. Heilt yfir mjög góður leikur," sagði Birnir Snær Ingason leikmaður Stjörnunnar eftir 4-2 sigur gegn Þór í dag.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 2 Þór

Það hefur mikið gengið á hjá Stjörnunni undanfarið, þar sem Jón Þór Hauksson var látinn fara sem þjálfari liðsins.

„Þetta er búið að vera fullmikið af einhverju þannig. Mér fannst við svara vel fyrir það í dag, við sáum það strax á æfingu, orkuna sem var á æfingu og við náum að færa það yfir í leikinn. Það sést kannski í því að þetta var einn af okkar betri leikjum á tímabilinu, allavega fyrstu 70 mínúturnar. Það var óþarfi að hleypa þeim inn í leikinn, en heilt yfir mjög góður leikur," sagði Birnir.

Olgeir Sigurgeirsson, Brynjar Kristmundsson og Hákon Ernir Haraldsson stýra núna liðinu saman og Birnir er ánægður með hvernig þeir hafa unnið.

„Það eru topp menn. Þeir koma inn með mikla orku, og vildu bara að við myndum fara í fulla pressu. Þeir gáfu okkur bara mikla orku, við fórum bara í full on pressu. Eins leikmaður og ég er, þá finnst mér það henta mér betur að vera eins ofarlega á vellinum og hægt er og frekar pressa og kannski taka smá séns. Við sýndum það í dag, við fengum fullt af færum og hefðum alveg getað skorað fleiri mörk. Svo þegar við lágum í vörn náum við að skora tvö mörk, þannig við náðum líka að nýta það," sagði Birnir.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.