23.08.26 - 16:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið KA og KR: Fyrsti leikurinn undir stjórn Eiðs Smára

Mynd: KA

Mynd: KA
KA mætir KR í Bestu deildinni í dag. Eiður Smári Guðjohnsen stýrir liði KA ásamt Hallgrími Jónassyni í fyrsta sinn.
Lestu um leikinn: KA 3 - 5 KR
Það er ein breyting á liði KA sem gerði 4-4 jafntefli gegn Val í síðustu umferð. Hans Viktor Guðmundsson snýr aftur úr leikbanni og kemur inn fyrir Jeppe Pedersen sem fær sér sæti á bekknum.
Ásgeir Sigurgeirsson er á bekknum hjá KA en hann hefur verið lengi fjarverandi vegna meiðsla.
Það eru tvær breytingar á liði KR sem gerði 3-3 jafntefli gegn Breiðabliki í síðustu umferð. FInnur Tómas Pálmason og Arnór Ingvi Traustason eru í banni og Michael Akoto og Sigurður Breki Kárason koma inn í byrjunarliðið.
Þá er Arnar Freyr Ólafsson á bekknum en hann hefur verið meiddur og spilaði síðast í deildinni í apríl.

Byrjunarlið KA
- 1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
- 2. Birgir Baldvinsson
- 3. Kári Gautason
- 6. André Rømer
- 7. Adam Ægir Pálsson
- 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
- 17. Samuel Karl Kroon
- 21. Mikael Breki Þórðarson
- 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
- 29. Jakob Snær Árnason
- 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
Byrjunarlið KR
- 12. Halldór Snær Georgsson (m)
- 4. Michael Osei Akoto
- 9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
- 11. Aron Sigurðarson (f)
- 17. Luke Morgan Conrad Rae
- 21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
- 22. Ástbjörn Þórðarson
- 26. Hrafn Tómasson
- 30. Sigurður Breki Kárason
- 45. Galdur Guðmundsson
- 77. Orri Hrafn Kjartansson