23.08.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Miklar líkur á að Barcola fari til Liverpool

Bradley Barcola.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Bradley Barcola.

Mynd: EPA
Liverpool er enn að vinna að kaupum á Bradley Barcola frá Paris Saint-Germain og samkvæmt BBC Sport eru miklar líkur á að félagaskiptin gangi í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokar 1. september.

TENGT EFNI
Stór félagaskipti sem gætu klárast fyrir gluggalok
Viðræður hafa dregist á langinn en PSG virðist tilbúið að selja þennan 23 ára gamla kantmann. Félagið hefur styrkt sóknina í sumar með Ferran Torres, Mika Godts og Maghnes Akliouche og því sé ekki sérstakur vilji til að halda Barcola.
Franski blaðamaðurinn Fabrice Hawkins segir þó að verðmiðinn sé helsta hindrunin. PSG er sagt vilja allt að 145 milljónir punda fyrir Barcola.
Liverpool hefur hingað til lagt fram munnlegar fyrirspurnir en ekkert formlegt tilboð hefur borist. Samkvæmt Hawkins gæti næsta formlega tilboð þó ráðið úrslitum og talið er að upphæð á bilinu 111-128 milljónir punda gæti dugað til að ganga frá kaupunum.
Barcola hefur verið eitt helsta skotmark Liverpool í allt sumar og allt bendir nú til þess að félagið ætli sér að klára viðskiptin áður en glugginn lokar.