Fotbolti.net
Stór félagaskipti sem gætu klárast fyrir gluggalok

23.08.26

Stór félagaskipti sem gætu klárast fyrir gluggalok

ÍVAR BJÖRGVINSSON

Nú styttist í það að félagaskiptaglugginn loki í öllum helstu deildum Evrópu og þá er tilvalið að taka saman þá stóru díla sem enn gætu klárast fyrir gluggalok þann 1. september. Stór félagaskipti hafa átt sér stað nú þegar, en þar má meðal annars nefna Rodri til Barcelona, Morgan Rogers til Chelsea og Elliot Anderson til Manchester City. Ljóst er að enn séu lið virk á markaðnum og í leit að leikmönnum fyrir komandi átök tímabilsins en hvaða stóru dílar detta inn á næstu dögum verður gaman að fylgjast með. Margir leikmenn hafa verið orðaðir burt frá sínum liðum í margar vikur og sömuleiðis lið orðuð við kaup á ákveðnum leikmönnum en oft detta stórir dílar inn rétt fyrir gluggalok.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.