Siggi Höskulds: Hvernig við bregðumst við er ekki boðlegt


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög kaflaskiptur leikur, við byrjum ekki nægilega vel," sagði Sigurður Höskuldsson þjálfari Þór eftir 4-2 tap gegn Stjörnunni í dag.
„Þeir dæla boltanum upp og við réðum bara illa við það. Við töpum fyrsta og öðrum bolta, við vorum lélegir í þeim fasa leiksins. Þeir héldu svo boltanum í kringum teigin okkar, og fengu mikið af hornspyrnum og aukaspyrnum. Svo tökum við, fannst mér svolítið yfir leikinn, erum að spila ágætlega en ekki að skapa nægilega mikið. Við erum að stjórna leiknum og hugarfarið er fínt. Svo töpum við boltanum og viðbrögðin við því er bara hræðileg. Þeir sækja hratt og skora, þá er 2-0, hvernig við bregðumst við því er bara ekki boðlegt. Við vorum mjög sárir og svekktir og reiðir í hálfleik, svo er allt annað lið sem kemur í seinni hálfleik. Fáum svo aftur mark á okkur þegar augnablikið er með okkur, þá skora þeir fjórða markið. Mér fannst við ofan á og spila fínan leik, mörg augnablik sem eru góð, en slæmu augnablikin kosta okkur allt of mikið, og þeir baka okkur þar," sagði Sigurður.
Leikurinn fór fram inni í knatthúsinu Miðgarði, sem hefur verið gagnrýnt. Sigurði fannst hins vegar ekkert að því.
„Við æfum hálft árið inni. Þannig þetta var ekkert sem við vorum að pæla í, þetta var bara fótboltaleikur hérna inni á fínu grasi," sagði Sigurður.
Stjarnan lét Jón Þór Hauksson fara fyrir þennan leik sem gerði undirbúninginn aðeins snúnari fyrir Sigurð.
„Auðvitað gerir það, það. Stjarnan er samt með þannig leikmenn að þú veist svona sirka hvernig það er. Við skoðuðum aðeins leiki sem þjálfarateymið hafði spilað áður með öðrum liðum. Bara til þess að fá smá fílíng fyrir þessu. Þegar það er nýr þjálfari þá er aðeins erfiðara að rýna í þetta. Þetta var bara svipað og þeir hafa verið að gera, og þeir nota bara sín vopn. Þeir eru með frábær vopn í nokkrum mönnum og þeirra stærstu menn slóu okkur út af laginu í þessum leik," sagði Sigurður.
