„Þú færð ekkert Eið Smára inn sem samþjálfara“

Eiður Smári er mættur til starfa á Akureyri.

Mynd: KA

Hallgrímur Jónasson hefur stýrt KA undanfarin ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA er í fallsæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári er einn besti fótboltamaður sem Ísland hefur átt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA spilar við KR á eftir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári stýrði síðast FH.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Eiður Smári á vellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nær KA að rétta úr kútnum?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári er mættur til starfa á Akureyri.

Mynd: KA
Eiður Smári mun stýra KA í fyrsta sinn á eftir þegar liðið mætir KR í Bestu deildinni.

Það sem Eiður Smári getur gefið KA
Eiður hefur spilað undir stjórn José Mourinho og Pep Guardiola á ferlinum og sú reynsla mun skila sér.
„Hann hefur náttúrulega verið undir stjórn tveggja af bestu þjálfurum okkar samtíma, José Mourinho og Pep Guardiola. Hann hefur verið út um allt og kann þetta allt saman. Hann er svakalega sterkur þegar boltinn er í leik. Frá keilu til keilu má örugglega segja að hann sé besti þjálfari á Íslandi.“
„Fyrsta verkefnið er náttúrulega að koma trú í þessa menn, að þeir séu betri en taflan segir til um. Það eru 3-4 leikmenn þarna sem eru að spila svo langt undir getu að ég myndi halda að það væri hans fyrsta verk að reyna að koma mönnum eins og Danijel Dejan Djuric, Oliver Heiðarssyni og Adam Ægi Pálssyni í gang," sagði Tómas.
Tómas telur að nærvera Eiðs Smára ein og sér geti haft mikil áhrif á leikmennina, en hann er að margra mati besti fótboltamaður sem Ísland hefur átt.
„Ég held að hann muni lyfta liðinu bara með því að standa þarna. Ef þú horfir virkilega á myndbandið sem KA setti út þá sérðu hvernig þeir horfa á hann þegar hann er að tala. Þegar þeir fara út á völlinn gegn KR, þá viltu ekki bregðast Eiði Smára Guðjohnsen," sagði Tómas.
„Haddi er bara kominn í aukahlutverk þarna. Þú færð ekkert Eið Smára þarna inn sem einhvern samþjálfara. Haddi að sjálfsögðu hjálpar til en við vitum alveg hver stýrir þessum átta leikjum sem eru eftir," sagði Tómas jafnframt.
Það er smá skrítið
Elvar Geir og Tómas ræddu einnig stöðu Hallgríms, sem heldur áfram sem þjálfari KA en fær nú Eið Smára sér við hlið.
„Mér finnst skrítin ára yfir því að Haddi sé þarna enn. Ég er alveg heiðarlegur með það. Hallgrímur Jónasson er yndislegur maður, flottur gæi. Hann verður að taka stöðunni eins og hún er, hún er ekki góð. Þeir hafa verið um margt herfilegir í ár,“ sagði Tómas.
Hann skilur þó ákvörðun KA að hafa Hallgrím áfram hjá félaginu, enda þekkir hann bæði liðið og Eið Smára vel.
„Við sjáum það samt að Eiður er kominn inn í umfjöllunina um enska boltann og það er meira að gera hjá honum, hann er að fljúga á milli og þá er gott að vera með Hadda þarna sem þekkir þetta. Ég næ því alveg. En samt er þetta smá skrítið.“
„Ég skil pælinguna að halda kjölfestunni í Hadda þarna inni, en hann þarf þá að stíga til baka eitt skref í þessu. Það verður samt nóg að gera hjá honum. Eiður þarf að vera í bænum og sinna nýju hlutverki.“
Elvar Geir benti svo á að staða Hallgríms gæti orðið erfið ef KA tekst að bjarga sér frá falli.
„Haddi hlýtur samt að gera sér grein fyrir því að ef KA fer á skrið og nær að bjarga sér, eru flottir á lokasprettinum, þá er Eiður Smári að fara að fá allt hrósið.“
„Fyrir utan það að Haddi er enn að þjálfa KA, sem ég held að honum finnist mjög gaman og þykir mjög vænt um, þá út á við er þetta algjör 'lose-lose'-staða fyrir manninn.“
Þegar Elvar spurði hvort Hallgrímur væri í grunninn orðinn aðstoðarþjálfari KA svaraði Tómas einfaldlega:
„Já, þú sérð það á þessu myndbandi. Það er bara einn maður sem stýrir þessu.“
Hefðirðu valið einhvern annan?
Þeir telja báðir að KA hafi gert vel út frá þeirri stöðu sem félagið er í að ráða Eið Smára.
„Hrós á Sævar Pétursson og mennina sem standa að þessu. Það verður aldrei sagt um mennina á bak við KA að þeir gefist upp. Ef þú hefðir mátt velja einn til að standa við hliðina á Hadda, hefðirðu valið einhvern annan?“ spurði Tómas.
„Nei. Það er bara þannig,“ svaraði Elvar Geir.
KA á nú átta leiki eftir á tímabilinu og Eiður Smári fær það verkefni að hjálpa liðinu að rétta úr kútnum á lokasprettinum. Þetta verður alls ekki auðvelt verkefni en mjög áhugavert að sjá hvernig þetta fer.

Hallgrímur Jónasson hefur stýrt KA undanfarin ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA er í fallsæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári er einn besti fótboltamaður sem Ísland hefur átt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA spilar við KR á eftir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári stýrði síðast FH.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Eiður Smári á vellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nær KA að rétta úr kútnum?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður kemur inn sem aðalþjálfari með Hadda - „Svo er staðan tekin í haust“

