Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. september 2020 17:00
Hafliði Breiðfjörð
Leikur Vestra og Keflavíkur færður á föstudag
Svona voru aðstæður undir lok leiks hjá Vestra og Leikni F. á sunnudaginn.
Svona voru aðstæður undir lok leiks hjá Vestra og Leikni F. á sunnudaginn.
Mynd: Vestri á YouTube
Búið er að færa leik Vestra og Keflavíkur í 18. umferð Lengjudeildar karla en liðin mætast á föstudag klukkan 16:15 en ekki á laugardag eins og áætlað var.

Spáð er rigningu á Ísafirði á laugardag og vegna vallaraðstæðna hefur leikurinn verið færður.

Rigning setti stórt strik í reikninginn í síðari hálfleik hjá Vestra og Leikni F. á sunnudag en þar mynduðust pollar á Olísvellinum.

Í 3. deildinni hefur leikur Ægis og KV verið færður frá laugardegi yfir á föstudag út af veðurspá.

Föstudagur
16:15 Vestri-Keflavík (Olísvöllurinn)

Laugardagur
14:00 Leiknir R.-Afturelding (Domusnovavöllurinn)
14:00 Leiknir F.-Víkingur Ó. (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 Þróttur R.-ÍBV (Eimskipsvöllurinn)
14:00 Þór-Fram (Þórsvöllur)
15:00 Grindavík-Magni (Grindavíkurvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner