Fotbolti.net
23.09.22 - 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Toney og fjórir aðrir utan hóps hjá Englandi í kvöld

Toney og fjórir aðrir utan hóps hjá Englandi í kvöld
Canon

Mynd: EPA

England mætir Ítalíu í Þjóðadeildinni í kvöld. Enski landsliðshópurinn fyrir leikina tvo í þessum landsleikjaglugga er stór og þurfa nokkrir leikmenn að gera sér það að góðu að vera utan hóps þegar leikurinn í kvöld fer fram.

Það eru þeir Ivan Toney, Marc Guehi, Ben Chilwell, Jordan Henderson og John Stones. Stones tekur út leikbann í kvöld þar sem hann fékk rautt spjald gegn Ungverjalandi í júní.
Toney er í fyrsta sinn í landsliðshópnum hjá Englandi en fyrsti leikurinn mun ekki koma í kvöld. Jordan Henderson er þá að snúa til baka eftir meiðsli.

England er á botni riðilsins í Þjóðadeildinni og tap gegn Ítalíu í kvöld þýðir að England fellur í B-deildina. England á svo Þýskaland í lokaumferð riðilsins á mánudag.

Sjá einnig:
Enski landsliðshópurinn: Maguire valinn en ekki Sancho
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.