29.09.26 - 20:12
Brynjar Ingi Erluson
Forseti La Liga vill sjá Man City refsað af fullri hörku

Javier Tebas

Mynd: EPA

Javier Tebas

Mynd: EPA
Javier Tebas, forseti La Liga á Spáni, vill að Manchester City fái hörðustu mögulegu refsingu fyrir brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009 til 2018.

TENGT EFNI
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar birti niðurstöðu sína í kærumálinu gegn Man City þar sem félagið var fundið sekt í öllum 115 ákæruliðunum.
Man City hefur frest til 2. október til að áfrýja dómnum og mun félagið nýta sér þann rétt. Tapi það áfrýjuninni gætu mjög harðar refsingar hins vegar beðið þess.
Talað hefur verið um mögulega sviptingu titla, fall niður um deild, félagaskiptabann, stigafrádrátt og háar sektir, en Tebas segir að refsingin þurfi að vera þung.
„Ég er á því að það ætti að beita hörðustu refsingu samkvæmt regluverki ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta verður að vera öðrum víti til varnaðar. Það er mjög alvarlegt mál að brjóta reglurnar í tíu ár,“ sagði Tebas við FIFPRO.