fös 24. janúar 2020 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Reykjavíkurmótið: Patrick Pedersen afgreiddi Leikni
Mynd: Hulda Margrét
Leiknir R. 0 - 3 Valur
0-1 Patrick Pedersen ('5)
0-2 Patrick Pedersen ('13)
0-3 Patrick Pedersen ('40)

Danski sóknarmaðurinn Patrick Pedersen sá um að afgreiða Leikni R. í lokaumferð riðlakeppni Reykjavíkurmótsins í kvöld.

Patrick skoraði tvö mörk á fyrsta stundarfjórðungi leiksins og fullkomnaði þrennuna fyrir leikhlé.

Meira var ekki skorað í leiknum og endar Valur á toppi riðilsins, með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.

Leiknir endar í öðru sæti, með fjögur stig. Leiknismenn geta þó misst sætið til Víkings R. sem er að keppa við Fram þessa stundina.
Athugasemdir
banner
banner
banner