Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 24. janúar 2022 18:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Blackpool kallar leikmann úr láni - Daníel til Póllands?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það lítur allt út fyrir að Daníel Grétarsson sé að yfirgefa enska félagið Blackpool í janúar.

Championship liðið Blackpool hefur kallað Jordan Thorniley úr láni frá Oxford sem leikur í þriðju efstu deild. Það var búist við því að hann myndi klára tímabilið með Oxford.

Þetta ýtir undir það að Daníel sé á förum en hann hefur verið orðaður við pólska félagið Śląsk Wrocław og Neil Critchley stjóri Blackpool hefur staðfest áhugann frá pólska félaginu.

Daníel hefur aðeins komið við sögu í þremur leikjum liðsins á þessari leiktíð. Hann hélt til Englands fyrir síðustu leiktíð frá Álasundi. Hann er 26 ára gamall og hefur leikið 5 A-landsleiki fyrir Ísland.
Athugasemdir
banner
banner