Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segist halda sambandi við Erling Braut Haaland framherja Dortmund.
Haaland hefur slegið í gegn hjá Dortmund en hann lék undir stjórn Solskjær hjá Molde á sínum tíma.
„Þegar þú hefur verið með börn og unga leikmenn sem þjálfari þá fylgist þú með þeim og ég er í sambandi við Erling," sagði Solskjær.
„Það er frábært að sjá hann verða sá leikmaður sem hann er orðinn og ég veit að hann mun reyna að vinna í að bæta sig áfram."

„Hann er leikmaður Dortmund og við óskum honum góðs gengis og sjáum hvað gerist í lífinu síðar meir."
Athugasemdir