Fram hefur farið rólega af stað á leikmannamarkaðnum það sem af er undirbúningstímabils og aðeins fengið tvo nýja leikmenn í sínar raðir, þá Bjarna Pál Linnet Runólfsson og Sigurjón Daða Harðarson.
Ægir Jarl Jónasson er væntanlegur til félagsins en óljóst er hvort hann gangi strax til liðs við Framara eða komi inn í júlíglugganum. Ásamt því hefur verið rætt um áhuga erlendra félaga á framherjanum Jakob Byström.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, og ræddi við hann um stöðu mála í Úlfarsárdal.
Ægir Jarl Jónasson er væntanlegur til félagsins en óljóst er hvort hann gangi strax til liðs við Framara eða komi inn í júlíglugganum. Ásamt því hefur verið rætt um áhuga erlendra félaga á framherjanum Jakob Byström.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, og ræddi við hann um stöðu mála í Úlfarsárdal.
Vonast til að halda Byström fram á sumar
Greint var frá því á Fótbolta.net í gær að það væri áhugi á sænska framherjanum Jakob Byström. Nokkur félög frá Svíþjóð höfðu mikinn áhuga á leikmanninum ásamt öðru liði frá ónefndu landi.
„Það er ekkert klárt. Það komu tvö félög strax um áramótin og voru mjög áhugasöm. Þau áttu í viðræðum við Fram en þetta er eitthvað sem er ekki að fara gerast núna. Það eru flestallir gluggar lokaðir. Það var mikill áhugi en það er ekkert fast í hendi ennþá. Ég reikna með að halda honum allaveganna eitthvað fram á sumarið. Eins og staðan er núna er hann leikmaður Fram.“
Horfir í fremstu stöðurnar
Þarf Fram að styrkja sig og hvar þá helst?
„Við viljum auðvitað reyna styrkja okkur á öllum vígsstöðvum. Við erum búin að byggja upp ágætis hóp síðastliðin tvö ár. Við erum með fínan grunn. Ég hef í rauninni ekki misst neinn af byrjunarliðsmönnunum mínum. Þeir sem spiluðu flesta leiki eru enn hjá mér.
Síðan höfum við fengið Bjarna Pál og Sigurjón Daða til að fylla í það sem við höfum misst og vonandi fáum við Ægi (Jarl) sem fyrst. Svo erum við að vinna í einum, tveimur leikmönnum sem við getum vonandi kynnt fljótlega. Það er ekkert fast í hendi ennþá, við viljum auðvitað styrkja okkur.
Mér fannst okkur vanta eitthvað í framlínuna í fyrra, okkur vantaði fleiri mörk frá fremstu mönnum. Svo getur vel verið að það séu ekki endilega þeir, mennirnir fyrir aftan þá skapa ekki nægilega mikið eða við kannski ekki nægilega sókndjarfir. Það er erfitt að henda reiður á því. En ég held að það væri gott að fá leikmann eins og öll lið vilja - Maður sem getur skorað 10-12 mörk í deildinni, við leitum kannski helst að því núna.“
Ekkert komið upp á borð með Breka
Þá hefur einnig verið slúðrað um möguleikann að fá Breka Baldursson aftur heim í Fram en hann er leikmaður Esbjerg í Danmörku.
„Það hefur ekkert komið upp á borð til okkar. Ég vona að Breki verði áfram úti og berjist fyrir sínu. Hann er búinn að bæta sig fullt, við höfum tekið eftir því þegar hann hefur mætt á æfingar hjá okkur í vetur og haust.
Ég persónulega myndi óska þess að Breki muni berjast í gegnum sitt og koma sér í liðið úti. Auðvitað er hann alltaf velkominn til baka í Fram. Við tökum gjarnan á móti okkar fyrrverandi leikmönnum ef þeir vilja koma aftur. En auðvitað hvetur maður þessa stráka að halda áfram að leggja á sig og berjast fyrir sínu.“
Það hefur jafnframt verið greint frá áhuga Fram á Atla Þór Jónassyni, framherja Víkings. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála Víkings, sagði við Fótbolta.net í síðasta mánuði að hann hafi rætt við Fram ásamt fleiri liðum. Kári sagði þá Atla einungis falann á lánssamningi.
Rúnar var spurður út í framherjann stæðilega en hann vildi ekki tjá sig um einstaka leikmenn sem eru samningsbundnir öðrum innlendum liðum.
Meiðslalistinn
Hvernig er staðan á hópnum?
„Vuk hefur verið að gera allt á æfingum undanfarnar þrjár vikur nema að spila. Það styttist í það að hann geti spilað á æfingum, í þessari eða næstu viku. Þetta var einhver rifa í nára sem þurfti tíma til að gróa.
Þetta er ekki alvarlegt hjá Þorra. Þetta er beinmar í ökkla, við álag fær hann meiri verk en ella, sem heldur honum frá einhverjum dögum í æfingu. Hann er búinn að vera frá í viku en það styttist í að hann fari aftur að hreyfa sig. Þetta er hvimleitt og búið að vera í langan tíma, við þurfum að reyna koma í veg fyrir þetta svo að hann haldist heill.“
„Sigurjón (Rúnarsson) er slæmur efst í lærinu og fer í myndatöku á morgun. Eitthvað sem hann hefur glímt við í smá tíma. Már Ægisson hefur verið meiddur og frá æfingum í mánuð, tognaði aðeins í hnénu. Óliver (Elís Hlynsson) fór aftur í aðgerð á rist, sama og hann fór í fyrir um ári síðan. Hann er í endurhæfingu og verður byrjaður aftur í fótbolta um miðjan mars.
Sigurjón Daði fór síðan í aðgerð í dag á nefinu. Eitthvað gamalt sem þurfti að laga. Hann verður frá í viku, tíu daga og getur þá æft með spelku,“ segir Rúnar að lokum.
Athugasemdir


