Ægir Jarl Jónasson er á heimleið frá Danmörku og hefur samið við Fram. Þetta staðfestir Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, í samtali við Fótbolta.net en greint var frá tíðindunum á síðunni í gær.
Ægir gengur til liðs við Framara frá danska félaginu AB, en óvíst er þó hvenær hann kemur til landsins. Samningur Ægis við danska liðið rennur út þann 30. júní en möguleiki er á því að hann fái að semja um starfslok við AB og gangi til liðs við Framara áður en Besta deildin hefst.
Ægir, sem er 27 ára miðjumaður, gekk til liðs við AB frá KR fyrir tæpum tveimur árum. Hann hefur spilað sextán leiki fyrir danska félagið á tímabilinu sem er á toppi C-deildarinnar.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson þjálfara Fram um komu Ægis.

„Við erum að bíða eftir því að hann losni hjá AB, hann er búinn að semja við Fram. Eina spurningin er hvenær hann kemur í Fram. Samningurinn tekur gildi um leið og hann losnar frá AB. Það er þeirra að taka ákvörðun um það hvort að þeir ætli að spila honum núna, þegar mótið í Danmörku hefst um miðjan mars, eða að leyfa honum að koma heim. Ef þeir ætla að nota hann og hann verður þeirra leikmaður út samninginn þá kemur hann ekki fyrr en í glugganum í júlí,“ segir Rúnar og heldur áfram.
„Umboðsmaður Ægis er búinn að vera í samskiptum við forystumenn AB þar sem hann lætur þá vita að Ægir sé búinn að semja við félag á Íslandi, þar sem hann á minna en sex mánuði eftir af samningi. Þá er þetta bara í höndum félagsins og Ægis að semja um starfslok eða hvort hann klári tímabilið. Það er eitthvað sem þeir leysa sín á milli.“
Rúnar þekkir Ægi vel en hann fékk Ægi til KR frá Fjölni árið 2019. KR varð Íslandsmeistari á fyrsta ári Ægis í Vesturbænum og unnu hann og Rúnar saman á árunum 2019-23. Hjá KR lék Ægir með fyrirliða Fram, Kennie Chopart.
„Auðvitað viljum við fá Ægi sem fyrst en við leyfum umboðsmanninum og félaginu að vinna í þeim málum. Vonandi vitum við fyrr en seinna hvað verður. Eðlilega viljum við fá hann áður en Íslandsmótið byrjar en engu að síður vitum við að við munum fá hann - Hvort sem það verður fyrir mót eða í júlíglugganum. Fyrir okkur Framara verður það vonandi fyrir mót,“ segir Rúnar að lokum.
Nánar var rætt við Rúnar og verður ítarlegra viðtal við hann birt síðar í dag.
Athugasemdir