Í stórum upphitunarþætti Uppbótartímans fyrir Bestu deild kvenna var tekinn saman listi yfir fimm leikmenn sem eiga meira inni eftir síðasta tímabil, leikmenn sem voru slakir á síðasta tímabili en gætu sprungið út núna. Á þessum lista voru:
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Jasmín Erla Ingadóttir (Víkingur R.)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Víkingur R.)
Tinna Brá Magnúsdóttir (Valur)
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Jasmín Erla Ingadóttir (Víkingur R.)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Víkingur R.)
Tinna Brá Magnúsdóttir (Valur)
Jasmín er að koma í Víking eftir frekar erfiðan tíma þar sem hún fann sig ekki alveg. Þar áður var hún einn besti leikmaður deildarinnar í Stjörnunni.
„Eigum við að tala um hugarfar? Ef Jasmín Erla nennir, þá er hún besti leikmaðurinn í deildinni. Hún er með þá eiginleika. Hún er með góðan skotfót, leikskilning og yfirsýn. Ég vona svo innilega að við fáum að sjá Stjörnu Jasmín Erlu. Hún er með alla þessa hæfileika. Ég bind miklar vonir við að hún rífi sig upp og að hamingjan verði mjög hamingjusöm," sagði Magnús Haukur Harðarson í þættinum.
Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan



