Fotbolti.net
24.05.18 - 16:00
Arnar Daði Arnarsson

Arnór Ingvi: Vissi ekki af hvíldarviku hjá FIFA

Auglýsing
Arnór Ingvi: Vissi ekki af hvíldarviku hjá FIFA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason er mættur til æfinga með íslenska landsliðinu þrátt fyrir að Malmö eigi leik gegn Dalkurd í sænsku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Leikmenn sem fara á HM mega ekki spila með félagsliðum sínum í þessari viku nema með sérstakri undanþágu.

„Það er hvíldarvika hjá FIFA sem er eitthvað sem ég vissi ekki af sjálfur. Ég má ekki spila leikinn sem er 27. maí. Ég er kominn heim og það er gott,\" sagði Arnór Ingvi við Fótbolta.net í dag.

Arnór Ingvi meiddist gegn Trelleborg á dögunum og var fjarri góðu gamni í síðustu tveimur leikjum hjá Malmö. Hann hefur jafnað sig af meiðslunum og er orðinn spenntur fyrir HM í sumar.

„Ég hafði auðvitað trú á að vera valinn. Auðvitað komu hugsanir um að ég yrði ekki með en ég fékk kallið og er mjög ánægður og stoltur með það,\" sagði Arnór.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.