Fotbolti.net
24.05.26 - 14:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Benoný spilaði í tapi um sæti í Championship deildinni

Benoný spilaði í tapi um sæti í Championship deildinni
Canon

Mynd: Stockport

Benoný Breki Andrésson byrjaði á bekknum þegar Stockport mistókst að komast upp í ensku Championship deildina.

Liðið mæti Bolton í úrslitum C-deildarumspilsins á Wembley. Bolton komst yfir strax í upphafi en Stockport sótti hart að marki Bolton og náði að jafna metin fyrir lok fyrri hálfleiks.
Sóknarmaðurinn Kyle Wootton var í miðverðinum hjá Stockport vegna meiðslavandræða en hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Benoný kom inn á eftir rúmlega klukkutíma leik en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Bolton skoraði tvö mörk í lokin og innsiglaði 4-1 sigur og sæti í Championship deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.