Fotbolti.net
24.05.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Átta lið í baráttu í lokaumferðinni

Nægir jafntefli til að tryggja Meistaradeildarsæti.

Nægir jafntefli til að tryggja Meistaradeildarsæti.

Canon

Mynd: EPA

Lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins verður leikin í dag og er mikið undir hjá átta félagsliðum.
Það getur ennþá ýmislegt gerst. Fallbaráttan er einföldust þar sem Tottenham nægir jafntefli á heimavelli gegn Everton til að forðast fall. West Ham þarf að leggja Leeds af velli á sama tíma og Tottenham tapa á heimavelli til að bjarga sér.

Hlutirnir flækjast þegar kemur að Evrópubaráttunni. Þar getur Aston Villa gefið Englandi eitt auka Meistaradeildarsæti með því að tapa gegn Manchester City, svo lengi sem Liverpool vinnur sinn leik á heimavelli gegn Brentford.

Annað hvort Bournemouth eða Brighton gætu þá komist í Meistaradeildina sem sjötta enska félagsliðið. Bournemouth getur einnig komist í Meistaradeildina með nægilega stórum sigri gegn Nottingham Forest, svo lengi sem Liverpool tapar sinni viðureign.

Brighton, sem á heimaleik gegn Manchester United, er í harðri baráttu um Evrópudeildarsæti ásamt Chelsea og nýliðum Sunderland sem eigast við í áhugaverðri innbyrðisviðureign. Régis Le Bris hefur unnið þrekvirki við stjórnvölinn hjá Sunderland og á liðið enn möguleika á sæti í Evrópudeildinni með sigri og hagstæðum úrslitum í Brighton og Liverpool, auk þess að geta komið sér í mjög góða stöðu í baráttunni um Sambandsdeildarsætið með sigri gegn Chelsea.

Leikir dagsins
15:00 Brighton - Man Utd
15:00 Burnley - Wolves
15:00 West Ham - Leeds
15:00 Fulham - Newcastle
15:00 Nott. Forest - Bournemouth
15:00 Liverpool - Brentford
15:00 Man City - Aston Villa
15:00 Tottenham - Everton
15:00 Sunderland - Chelsea
15:00 Crystal Palace - Arsenal
Tap hjá Aston Villa gæti leitt til auka Meistaradeildarsætis þökk sé Evrópudeildartitlinum.

Tap hjá Aston Villa gæti leitt til auka Meistaradeildarsætis þökk sé Evrópudeildartitlinum.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.