Fotbolti.net
24.05.26 - 20:49
Ívan Guðjón Baldursson

Gordon ónotaður varamaður fjórða leikinn í röð

Gordon ónotaður varamaður fjórða leikinn í röð
Canon

Mynd: EPA

Það er útlit fyrir að tími Anthony Gordon innan herbúða Newcastle United sé á enda. Hann er afar eftirsóttur og kom ekkert við sögu í síðustu sex umferðum úrvalsdeildartímabilsins.
Hann var meiddur tvo leiki en var svo ónotaður varamaður í síðustu fjórum leikjunum. Hann var ónotaður varamaður í 2-0 tapi gegn Fulham í lokaumferðinni þar sem 18 ára gamall Sean Neave fékk að koma inn af bekknum frekar en Gordon.

Gordon var valinn í enska landsliðshópinn fyrir HM og hefur verið orðaður við stórveldi á borð við FC Bayern, Arsenal og Liverpool á undanförnum mánuðum. Hann virðist vilja skipta um félag þar sem hann virðist hafa verið settur í skammarkrókinn hjá Newcastle, sem gæti verið reiðubúið til að selja hann fyrir um 70 milljónir punda.

Eddie Howe þjálfari segist ekki vita hvort Gordon sé búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Newcastle.

„Það er aldrei hægt að spá fyrir um hvað gæti gerst á leikmannamarkaðinum. Hann fer á HM núna og við óskum honum góðs gengis þar," sagði Howe og vildi ekki ræða meira um Gordon, sem virðist vera á förum.

Staðfestir viðræður við Newcastle
TENGT EFNI

Staðfestir viðræður við Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.