Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   lau 23. maí 2026 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Staðfestir viðræður við Newcastle
Mynd: EPA
Max Eberl, yfirmaður fótboltamála hjá Bayern, hefur staðfest að félagið sé í viðræðum við Newcastle um kaup á Anthony Gordon.

Enskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Bayern hafi náð samkomulagi við Gordon.

Félögin eiga enn eftir að ná samkomulagi en það er búist við því að Gordon muni fara til Þýskalands í sumar.

„Við munum kaupa sóknarmann ef við höfum efni á því. Við áttum gott samtal og getum vonandi náð samkomulagi," sagði Eberl.

Gordon, sem hefur ekki spilað fyrir Newcastle í rúman mánuð, er í landsliðshópi Englands sem fer á HM í sumar.
Slapp
banner
banner
banner