Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   sun 24. maí 2026 21:57
Ívan Guðjón Baldursson
Pep: Merkilegt fyrir mig að vera á sama stað í tíu ár
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola þjálfari Manchester City svaraði spurningum eftir tap í lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins. Hann yfirgefur félagið í sumar eftir tíu ár við stjórnvölinn.

Man City missti af Englandsmeistaratitlinum með jafntefli gegn Bournemouth í síðustu umferð og sigldi því lygnan sjó í dag. Lærlingar Guardiola tóku á móti Aston Villa og náðu forystunni en enduðu á að tapa eftir að hafa verið yfirspilaðir í seinni hálfleiknum.

„Ég fer frá félaginu með mikla friðartilfinningu. Ég gaf mig allan í þetta starf og ég hef alltaf fundið fyrir svo mikilli ást hérna. Þetta er sannleikurinn. Ég hef alltaf viljað vera á hreyfingu og prófa nýja hluti. Ég stýrði einu besta fótboltaliði sögunnar hjá Barcelona en ég fór til Bayern. Svo fór ég þaðan og kom hingað. Sem leikmaður fór ég til Mexíkó og til Ítalíu. Það er merkilegt fyrir mig að vera í tíu ár á sama staðnum," sagði Pep eftir lokaleik sinn sem aðalþjálfari Man City.

   22.05.2026 14:30
Pep himinlifandi með að fá skilaboð frá Sir Alex


„Það mikilvægasta er starfsumhverfið, fólkið sem þú vinnur með. Ég tengdi ótrúlega vel við alla hjá City og Khaldoon (Al-Mubarak, forseti Man City) er einhver besta manneskja sem ég hef nokkurn tímann kynnst á ævinni.

„Faðir minn er meðal stuðningsmanna í dag, hann er 95 ára gamall. Ég sagði við hann að hann yrði að koma á völlinn í hjólastól, sama hvað, til að sjá hversu mikið fólk elskar son hans.

„Ég er sjálfur faðir og einn daginn vil ég að sonur minn og tvær dætur finni það sama og ég finn frá fólkinu hérna í Manchester. Þetta er besta gjöfin.

„Ég vil þakka ykkur öllum svo mikið fyrir samveruna. Fjölskyldunafnið mitt verður áfram hérna (í nýju norðurstúkunni), ég grátbað um að fá að vera áfram partur af þessu félagi."


Man City skírði stúku eftir Guardiola og lætur reisa styttu af honum fyrir utan.

   22.05.2026 13:43
Guardiola orðlaus eftir ákvörðun City



Pep: "The next few years,all around the world, if you see me on the streets, if you are a Man City fan come and hug me. I mean it, I will need it."
by
u/Blodgharm in
soccer

Slapp
banner
banner