Fotbolti.net
24.05.26 - 18:36
Ívan Guðjón Baldursson

Sunderland átti að falla miðað við xG - Chelsea óheppnir

Sunderland átti að falla miðað við xG - Chelsea óheppnir
Canon

Mynd: EPA

Lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins fór fram í dag og tókst Sunderland að tryggja sér sæti í Evrópudeildinni með sigri gegn Chelsea.
Sunderland átti að falla miðað við xG - Chelsea óheppnir
TENGT EFNI

Sunderland átti að falla miðað við xG - Chelsea óheppnir



Chelsea missir af Evrópusæti útaf tapinu og er afar áhugavert að skoða xG töfluna. Í titilbaráttunni verðskuldaði Arsenal að enda í fyrsta sæti og Manchester City í öðru, en Chelsea átti að enda í fjórða miðað við tölfræðina.

Að sama skapi áttu andstæðingar þeirra í dag, nýliðar Sunderland, að falla aftur niður í Championship deildina miðað við xG tölfræðina. Sunderland átti að enda í 18. sæti en endaði í 7. sæti, á meðan Chelsea átti að enda í 4. sæti en endaði í 10. sæti.

Samkvæmt tölfræðinni átti West Ham ekki að falla og þá átti Aston Villa að enda í neðri hluta deildarinnar.

XG tölfræðin nær yfir áætluð mörk miðað við aðstæður marktilrauna. Þegar lið skora hærra en xG tölfræðin segir til um er það merki um hversu vel leikmenn liðsins nýttu færin sín og hversu vel þeir stóðu sig í að koma í veg fyrir mörk þegar andstæðingarnir fengu færi. Þegar lið skora lægra en tölfræðin segir til um þá voru leikmenn ekki nægilega góðir að nýta færin sín eða koma í veg fyrir mörk.

Á dögunum tryggði Hull City sér sæti í ensku úrvalsdeildinni með sigri í umspili Championship deildarinnar en samkvæmt xG tölfræðinni hefði liðið átt að enda á hinum enda stöðutöflunnar og falla niður um deild.

Hull átti að falla miðað við xG
TENGT EFNI

Hull átti að falla miðað við xG

Sunderland átti að falla miðað við xG - Chelsea óheppnir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.