Fotbolti.net
24.06.19 - 22:15
Sverrir Örn Einarsson

Kristján Guðmunds: Spiluðum verulega illa

Auglýsing
Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunar

Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<I>„Okkur mistókst með ansi margt, í upphafi leiksins gerum við tæknifeila, sendum boltann ekki á samherja, við erum ekki nálægt andstæðingnum í návigum og gefum bara virkilega mikið eftir og spiluðum bara verulega illa. En það má ekki taka neitt frá andstæðingnum, Keflavík var mjög gott. “</i>
Sagði hnípinn Kristján Guðmundsson eftir stórtap Stjörnunar gegn Keflavík í kvöld.
Strax í hálfleik gerði Kristján tvöfalda skiptingu til þess að freista þess að stoppa í götin og koma sínu liði aftur inn í leikinn. Það fór ekki betur en svo að Keflavík skoraði strax í upphafi seinni hálfleiks.

„Það er verið að ræða ákveðna hluti inn í klefanum, ekki það að það hafi ekki verið ræddir hlutir fyrir leik en það virðist eitthvað hafa verið í ólagi í aðdraganda leiksins og við þurfum eitthvað að ræða það.“

Rene Cuellar var fjarverandi í leikmannahóp Stjörnunar í kvöld. Er hún á meiðslalistanum?

„Rene er farin heim. Ágætis leikmaður en hún passaði ekki inn í hjá okkur.“

Sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.