Fotbolti.net
24.06.20 - 23:46
Gylfi Tryggvason

Atli Sveinn: Við erum bara að skoða aðra kosti

Auglýsing
Atli Sveinn: Við erum bara að skoða aðra kosti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mjólkurbikarinn
„Við undirbjuggum okkur mjög vel fyrir leikinn og vissum að ÍH eru með mjög fína fótboltamenn þó þeir séu í 4. deildinni. Manni líður aldrei vel fyrr en maður er búinn að brjóta niður fyrsta varnarmúrinn hjá svona liði.“ sagði Atli Sveinn Þórarinsson, þjálfari Fylkis, eftir 0-8 sigur á ÍH í Mjólkurbikar karla í kvöld.
Sigurinn var aldrei í hættu og Fylkismenn náðu að dreifa álaginu vel. „Við notuðum allar skiptingarnar, margir sem fengu fínar mínútur í dag. Að sama skapi voru menn aðeins farnir að stífna upp, langt síðan sumir spiluðu og það var gott að geta gefið mönnum mínútur.“

Geoffrey Castillion kemur ekki til Fylkis eins og vonir stóðu til. Hvað taka Fylkismenn þá til ráða?

„Við erum bara að skoða aðra kosti og sjá hvort það er eitthvað spennandi sem býðst en auðvitað viljum við, ef það er eitthvað, að það sé góður leikmaður. Ekki bara taka einhvern til að taka einhvern.“

„Ef ég mætti velja einn leikmann? Þetta er svakalega erfið spurning. Ég segi pass.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.