Fotbolti.net
24.07.22 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Laporta vonast til að fá Messi aftur til Barcelona

Laporta vonast til að fá Messi aftur til Barcelona
Canon

Mynd: Getty Images

Joan Laporta forseti Barcelona segist vona að Lionel Messi snúi aftur til Barcelona í framtíðinni.

Þessi 35 ára gamli fótboltasnillingur er leikmaður PSG í dag og er samningsbundinn þar út næstu leiktíð og með möguleika á eins árs framlengingu.

„Ég held og vona að sögu Lionel Messi hjá Barcelona sé ekki lokið. Hurðin er ennþá opin og það er undir okkur komið að semja sem bestan endi á sögunni," sagði Laporta við ESPN.

„Sem forseti Barcelona líður mér eins og ég skuldi Messi góðan endi."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.