Fotbolti.net
24.07.26 - 21:48
Ívan Guðjón Baldursson

Kiddi Freyr kynntur í Mosó: „Ég er kominn heim"

Kiddi Freyr kynntur í Mosó: „Ég er kominn heim"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Kristinn Freyr Sigurðsson er kominn aftur heim til uppeldisfélagsins Aftureldingar eftir að hafa leikið með Sundsvall, Val og FH síðasta áratug.
Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)
TENGT EFNI

Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)

Hann ætlar að hjálpa liðinu í toppbaráttu Lengjudeildarinnar eftir fall úr Bestu deildinni í fyrra.

Kiddi gæti reynst gríðarlega sterk viðbót við leikmannahópinn sem leikur undir stjórn Magnúsar Más Einarssonar.

Hann er 34 ára gamall og á einn landsleik að baki fyrir Ísland.

Afturelding er á toppi Lengjudeildarinnar með 31 stig eftir 14 umferðir sem stendur. Næsti leikur liðsins er á útivelli gegn Þrótti R.

Hann semur við Aftureldingu út keppnistímabilið 2027.

Tilkynning Aftureldingar
Miðjumaðurinn öflugi Kristinn Freyr Sigurðsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Aftureldingu á nýjan leik. Kristinn, sem er 34 ára gamall, skrifaði í dag undir samning við Aftureldingu sem gildir út næsta tímabil. Kristinn kemur til Aftureldingar frá Val en Afturelding vill þakka Valsmönnum fyrir fagmannleg og góð vinnubrögð í tengslum við félagsskiptin.

Kristinn spilaði í yngri flokkum Aftureldingar upp í 3. flokk en þá flutti hann ásamt fjölskyldu sinni í Grafarvog og gekk til liðs við Fjölni. Kristinn er tíundi leikjahæsti leikmaður efstu deildar á Íslandi frá upphafi en hann á að baki 285 leiki þar á ferli sínum.

Kristinn hefur lengst af á ferlinum spilað með Val þar sem hann hefur bæði orðið Íslands og bikarmeistari auk þess sem hann var valinn besti leikmaður efstu deildar árið 2016. Kristinn fór í kjölfarið til Svíþjóðar þar sem hann spilaði í eitt ár með GIF Sundsvall.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn í Aftureldingu. Vonandi get ég hjálpað til við að halda uppgangnum áfram sem hefur verið undanfarin ár. Ég ætla svo sannarlega að leggja mitt að mörkum til að markmið félagsins náist. Ég get ekki beðið eftir að byrja," sagði Kristinn eftir undirskrift.

Afturelding býður Kristinn hjartanlega velkominn heim í Mosfellsbæinn!

Kiddi Freyr kynntur í Mosó: „Ég er kominn heim"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kiddi Freyr kynntur í Mosó: „Ég er kominn heim"
Canon

Mynd: Afturelding

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.