24.07.26 - 21:11
Elvar Geir Magnússon
Lengjudeildin: Njarðvík með endurkomusigur eftir að Davíð Smári fékk rautt

Davíð Smári fékk að líta rauða spjaldið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bragi Karl Bjarkason skoraði sigurmark Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tumi Þorvarsson skoraði annað mark HK.

Njarðvík 3 - 2 HK
0-1 Viktor Helgi Benediktsson ('5 )
1-1 Valdimar Jóhannsson ('18 )
1-2 Tumi Þorvarsson ('52 )
2-2 Aron Einarsson ('77 )
3-2 Bragi Karl Bjarkason ('91 )
Rautt spjald: Davíð Smári Lamude (þ), Njarðvík ('56)
Lestu um leikinn

Njarðvík vann dramatískan sigur á HK í Lengjudeildinni í kvöld. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, stýrði Njarðvíkingum á síðasta ári og fer tómhentur frá sínum gamla heimavelli. HK er í fjórða sæti, þremur stigum frá toppliði Aftureldingar en HK hefur leikið tveimur leikjum meira.
Tímabilið hefur verið vonbrigði fyrir Njarðvíkinga hingað til en þeir komust hinsvegar upp í umspilssæti með sigrinum í kvöld.
HK náði forystunni snemma leiks í kvöld þegar Viktor Helgi Benediktsson skoraði með skalla eftir hornspyrnu en varnarleikur heimamanna var svo sannarlega ekki til útflutnings. Njarðvík svaraði með skallamarki, Valdimar Jóhannsson skoraði eftir fyrirgjöf á 18. mínútu og staðan 1-1 í hálfleik.
Eftir sjö mínútna leik í seinni hálfleik náði HK aftur forystu og aftur kom skallamark. Tumi Þorvarsson stýrði boltanum í markið af stuttu færi. Aftur náði Njarðvík að jafna og það eftir að hafa sótt stíft. Aron Einarsson fékk boltann í teignum og jafnaði 2-2. Mark sem lá í loftinu.
Njarðvíkingar voru betri og skoruðu verðskuldað sigurmark í uppbótartíma. Alexander Helgi með frábæran bolta á fjærsvæðið þar sem Bragi Karl Bjarkason var mættur og setti boltann í netið.
Þjálfarinn fékk rautt þegar HK var yfir
Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, fékk að líta rauða spjaldið á 56. mínútu þegar hann var ósáttur með ákvörðun Elíasar Inga Árnasonar dómara.
„Davíð Smári fær rautt fyrir tryllinginn sinn á hliðarlínunni. Hann gengur berserksgang á hliðarlínunni og lætur bæði dómarann og aðstoðardómarann heyra það til skiptis. Davíð bara hættir ekki eins og Njarðvíkurliðið og bekkurinn og fær að lokum rautt spjald," skrifaði Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, í textalýsingu frá leiknum.
„Elli bíður bara og bíður eftir að Davíð kemur sér frá vellinum sem hann tekur sér sinn tíma í. Þetta voru afar áhugaverðar mínútur. Allir að fylgjast með Davíð fara fyrir aftan grindverkið sem hann gerir. Nú er hann ásamt hópi manna fyrir aftan mark HK (nær bílastæðinu) að garga inn á völlinn en Njarðvíkingar eru einmitt að sækja á það mark og þar stendur Davíð Smári að garga sína menn áfram."
Á 76. mínútu gerðist svo þetta:
„Davíð Smári stendur, eins og ég sagði hér áðan, fyrir aftan markið sem HK er að sækja að (nær bílastæðinu) og er að láta í sér heyra). Elli stoppar leikinn og biður hann um að fara þaðan, sem hann gerir eftir gott spjall við Elías."
HK var því yfir þegar Davíð Smári fékk að líta rauða spjaldið en Njarðvíkingar sigruðu með glæsilegri endurkomu. Eftir lokaflautið urðu læti og rauð spjöld fóru á loft.