Jóhann Kristinn: Þær eru með ref í brúnni

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er bara rosalega ánægður og glaður með þetta, að hafa komist áfram,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þrótta, eftir að liðið hans tryggði sig í úrstlitaleik Mjólkurbikarsins þetta árið.
„Hrikalega ánægður og montinn af stelpunum í Þrótti og hvernig þær tóku sig saman eftir hroðalega erfiðar síðustu vikur að taka þessa ákvörðun að koma svona samstilltar og samstíga í þetta verkefni. Þær bjuggu þetta til,“ hélt hann svo áfram.
Sigurinn var torsóttur en verðskuldaður og aðspurður hvort hann geti tekið undir það sagði hann:
„Já, það er rosalega erfitt að mæta þessu liði sem ÍBV er. Bæði er það vel stillt upp, þær eru með stóran, góðan hóp. Þær eru með sterka einstaklinga og ref í brúnni sem kann þetta allt saman og hefur gert þetta milljón sinnum áður. Það er erfitt að mæta ÍBV, mjög erfitt og torsóttur sigur, við hefðum kannski alveg átt að geta, mér fannst við hefðum átt að vera búin að skora en þessi leikur var aldrei að fara ð vera auðveldur fyrir annað hvort liðið.“
Aðspurður hvort hann héldi að þessi sigur gæti gefið liðinu, sem er búið að vera í brekku í deildinni, mikið sagði hann einfaldlega:
„Já ég held ekkert um það ég veit það.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum.






