Fotbolti.net
24.07.26 - 21:04
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Sannfærðir um að fá Rodri til sín

Sannfærðir um að fá Rodri til sín
Canon

Mynd: EPA

The Athletic greinir frá því að Real Madrid sé að vinna hörðum höndum að því að undirbúa kauptilboð fyrir miðjumanninn öfluga Rodri.
„Hver einasti stjóri vill hafa Rodri“
TENGT EFNI

„Hver einasti stjóri vill hafa Rodri“

Rodri hefur verið einn af bestu miðjumönnum heims síðustu ár þrátt fyrir að slíta krossband. Hann vann Ballon d'Or 2024 og var valinn besti leikmaður HM 2026.

Rodri er aðeins með eitt ár eftir af samningi við Manchester City þar sem hann er algjör lykilmaður og er sagður vera spenntur fyrir félagaskiptum til Real.

Rodri er 30 ára gamall og ólst upp hjá Atlético Madrid frá ellefu til sautján ára aldurs. Hann snéri svo aftur til Atlético og átti magnað tímabil áður en Man City virkjaði riftunarákvæðið til að kaupa hann sumarið 2019.

Man City vill halda Rodri og gefur Enzo Maresca þjálfari lítið fyrir orðrómana, þó fjölmiðlar telji ólíklegt að fyrirliði spænska landsliðsins geri nýjan samning við City.

Stjórnendur Real eru sagðir vera sannfærðir um að takast að fá Rodri til sín. Það gæti gerst í sumar, janúarglugganum eða næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.