Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skrifar undir samning hjá KR en fer til Bandaríkjanna í júlí
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Lúkas Magni Magnason hefur skrifað undir samning við KR sem gildir út tímabilið. Hann var skráður í félagið og er því með leikheimild, en hann spilaði síðast með KR sumarið 2024.

Hann hefur leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og var valinn til Real Salt Lake í nýliðavali MLS-deildarinnar í vetur. Stefnan er að hann fari til Bandaríkjanna í júlí og æfi með Salt Lake.

Eins og Lúkas Magni sagði í viðtali við Fótbolta.net í vetur er svo planið að hann spili með háskólaliði sínu, Clemson, á haustönninni en fari svo til Real Salt Lake byrjun árs 2027.

„Hann er að æfa með okkur, hann er öflugur leikmaður og eina vitið bæði fyrir hann og okkur var að setja hann á samning svo hann gæti mögulega spilað ef svo bæri undir. Fókusinn hjá honum er svo að fara æfa með Salt Lake og standa sig þar, mun æfa þar í toppdrengur. Hann er góður leikmaður og toppdrengur," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, við Fótbolta.net í dag.
Slapp
banner