Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 24. ágúst 2019 14:35
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Norwich og Chelsea: Abraham maður leiksins
Mynd: Getty Images
Tammy Abraham skoraði tvennu og tryggði Chelsea sigur gegn nýliðum Norwich í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Abraham var maður leiksins og var eini leikmaður vallarins sem fékk 9 í einkunnagjöf Sky Sports.

Mateo Kovacic og Mason Mount þóttu einnig skara fram úr í liði Chelsea og fengu 8 í einkunn, rétt eins og Emi Buendia, besti leikmaður Norwich í dag.

Teemu Pukki skoraði og lagði upp en nær þó ekki áttunni heldur fær hann sjö í einkunn.

Enginn leikmaður þótti áberandi slakur og því fékk enginn undir 6 í einkunn.

Norwich er með þrjú stig eftir tapið, Chelsea er með fjögur.

Norwich: Krul (6), Aarons (6), Godfrey (7), Hanley (7), Lewis (7), Trybull (6), Leitner (6), Stiepermann (6), Cantwell (7), Buendia (8), Pukki (7)
Varamenn: Vrancic (6), McLean (6), Srbeny (6)

Chelsea: Arrizabalaga (6), Emerson (7), Christensen (6), Zouma (6), Azpilicueta (7), Jorginho (7), Kovacic (8), Barkley (7), Mount (8), Pulisic (7), Abraham (9)
Varamenn: Willian (6), Giroud (6), Alonso (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner