Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 24. september 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Farinn frá Roma eftir Diawara mistökin - Á leið til Verona
Mynd: Getty Images
Pantaleo Longo sagði upp starfi sínu hjá Roma eftir að honum yfirsást að skrá miðjumanninn Amadou Diawara með aðalliðinu fyrir upphaf nýs tímabils.

Diawara var aðeins skráður sem U22 leikmaður þegar Roma gerði markalaust jafntefli við Verona í fyrstu umferð Serie A tímabilsins um helgina. Liðið fékk dæmt tap vegna mistakanna en hefur áfrýjað ákvörðuninni.

Longo sagði af sér þegar mistökin komust upp og greina ítalskir fjölmiðlar frá því að hann sé að semja við Verona.

Þetta eru Rómverjar afar ósáttir með og saka þeir Longo um að hafa gert þetta af ásetningi.

Sjá einnig:
Roma gerði mistök við leikskýrslugerð - Dæmt 0-3 tap

Athugasemdir
banner
banner