Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill bæta öflugum miðjumanni við hóp sinn áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 5. október.
Sky Sports segir frá því í dag að Arsenal hafi áhuga á að fá Jorginho frá Chelsea.
Ólíklegt er þó að Chelsea sé tilbúið að selja en Jorginho hefur verið fyrirliði liðsins í byrjun tímabils.
Sky Sports segir frá því í dag að Arsenal hafi áhuga á að fá Jorginho frá Chelsea.
Ólíklegt er þó að Chelsea sé tilbúið að selja en Jorginho hefur verið fyrirliði liðsins í byrjun tímabils.
Thomas Partey, miðjumaður Atletico Madrid, hefur einnig verið orðaður við Arsenal undanfarnar vikur sem og Houssem Aouar hjá Lyon.
Arsenal gæti á móti selt eða lánað Lucas Torreira til Atletico Madrid og þá gætu bæði Mesut Özil og Matteo Guendouzi hafa spilað sinn síðasta leik með félaginu.
Athugasemdir