Fotbolti.net
24.09.26 - 23:09
Elvar Geir Magnússon

Búist við sannfærandi sigri Íslands - „Klárlega sterkasta lið riðilsins“

Búist við sannfærandi sigri Íslands - „Klárlega sterkasta lið riðilsins“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Ísland er klárlega sterkasta lið riðilsins en við viljum byrja þennan riðil á góðum úrslitum og góðri frammistöðu," segir Karol Mets fyrirliði Eistlands við þarlenda fjölmiðla.

Ísland mætir Eistlandi á laugardag í fyrsta leik sínum í Þjóðadeildinni. Lúxemborg og Búlgaría eru einnig í riðlinum og Ísland er efst á heimslistanum af þessim liðum.

Ísland er í 74. sæti á styrkleikalista FIFA en Eistland í 127. sæti og veðbankar búast við mjög sannfærandi sigri Íslands í leiknum á laugardag.

Epicbet er með stuðulinn 1,30 á sigur Íslands en 10,60 á að Eistar vinni óvæntan sigur. Stuðullinn á jafntefli er 5,70.
Arnar setur skýra kröfu að ná toppsætinu - „Þá ertu dauður“
TENGT EFNI

Arnar setur skýra kröfu að ná toppsætinu - „Þá ertu dauður“

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari setur kröfu á að vinna riðilinn og komast þar með aftur upp í B-deildina. Það hefur greinilega heyrst á leikmönnum í viðtölum að þeir taka í sama streng.

„Ég held að við séum óhræddir að segja það að við ætlum okkur að vinna þennan riðil. Okkur langar ekki að vera í C-deild en það er staðan núna og við þurfum að byggja á því," sagði Jón Dagur Þorsteinsson.
Búist við sannfærandi sigri Íslands - „Klárlega sterkasta lið riðilsins“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.