Fotbolti.net
24.09.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Forgangsatriði að byggja 100 þúsund manna heimavöll

Forgangsatriði að byggja 100 þúsund manna heimavöll
Canon

Mynd: EPA

Omar Berrada, framkvæmdastjóri Manchester United, gaf út yfirlýsingu sem segir frá velgengni félagsins eftir að Sir Jim Ratcliffe keypti hlut af félaginu og tók fjármálahliðina að sér.
Hægri hönd Ratcliffe yfirgefur United
TENGT EFNI

Hægri hönd Ratcliffe yfirgefur United

Berrada talar um met hagnað hjá félaginu og segir að Manchester United hafi sjaldan verið í betri stöðu fjárhagslega.

„Við munum halda áfram að starfa með fjárhagslega sjálfbærni að leiðarljósi. Við erum að ná frábærum árangri, okkur tókst að styrkja bæði karla- og kvennaliðin í sumar og karlarnir tryggðu sér sæti í Meistaradeild Evrópu," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Berrada, sem talaði einnig um áform fyrir nýjan leikvang.

„Við erum búnir að tryggja okkur jörðina sem við þurfum til að geta hafið næsta skref í ferlinu. Það er forgangsatriði fyrir okkur að byggja nýjan 100 þúsund manna leikvang."

Old Trafford, heimavöllur Man Utd, var upprunalega byggður 1910 og er því rúmlega 100 ára gamall. Hann var endurnýjaður að miklu leyti eftir seinni heimsstyrjöldina.
Forgangsatriði að byggja 100 þúsund manna heimavöll
Canon

Mynd: EPA

Hugmynd að nýjum heimavelli.

Hugmynd að nýjum heimavelli.

Canon

Mynd: Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.