Fotbolti.net
24.09.26 - 22:40
Elvar Geir Magnússon

Ísraeli rekinn af velli eftir heimskulegt fagn

Saied Abu Farchi  virtist nota stöngina til að líkja eftir því að hann væri að skjóta úr byssu.

Saied Abu Farchi virtist nota stöngina til að líkja eftir því að hann væri að skjóta úr byssu.

Canon

Mynd: X

Saied Abu Farchi, framherji ísraelska landsliðsins, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir það hvernig hann fagnaði marki sínu gegn Austurríki í Þjóðadeildinni í kvöld.

Eftir að hafa fagnað með liðsfélögum sínum hljóp hann að einum hornfánanum og reif hann upp áður en hann virtist nota stöngina til að líkja eftir því að hann væri að skjóta úr byssu.

Myndbönd af fagni þessa tvítuga leikmanns fór fljótt í gríðarlega dreifingu á samfélagsmiðlum og margir tengja það við hernaðaraðgerðir Ísraela á Gaza.

Einhverjir halda því fram að Farchi hafi verið að líkja eftir snókerkjuða en margir af stærstu fréttamiðlum heims fullyrða að hann hafi þóst vera að nota skotvopn.

Það er allavega óumdeilanlegt að fagnið var heimskulegt og lítið hægt að segja við áminningu dómarans. Rauða spjaldið reyndist vendipunktur í leiknum, Farchi jafnaði 1-1 en Austurríki nýtti sér síðan liðsmuninn og vann 3-1.
Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.