Fotbolti.net
24.09.26 - 21:32
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael

Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael
Canon

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson og lærlingar hans í írska landsliðinu heimsóttu Kósovó í B-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld og töpuðu með einu marki gegn engu.
Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp

Heimamenn í liði Kósovó voru talsvert sterkari aðilinn allan leikinn og sáu Írar varla til sólar, en staðan hélst markalaus allt þar til á lokakaflanum þegar reynsluboltinn Vedat Muriqi með markanefið mikla skoraði.

Muriqi var tvisvar sinnum fyrstur að bregðast við á skömmum tíma. Fyrst náði hann að setja fótinn á undan varnarmanni í boltann til að stýra honum í slána og fylgdi hann marktilrauninni eftir með frábærum skalla þar sem hann þurfti fyrst að koma sér framfyrir tvo varnarmenn til að vinna frákastið.

Markið skoraði hann á 83. mínútu og fundu Írar ekkert svar, lokatölur 1-0. Muriqi er þar með búinn að gera 33 mörk í 69 landsleikjum.

Austurríki tók á sama tíma á móti Ísrael og náði forystunni með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Tvítugur Sayed Abu Farkhi jafnaði í upphafi síðari hálfleiks en lét reka sig af velli beint í kjölfarið. Hann fékk fyrst gult spjald á 52. mínútu eftir samskipti við Kevin Danso og skoraði skömmu síðar. Hann fagnaði markinu með að rífa hornfánann úr jörðinni og þykjast nota hann sem billjardkjuða. Georgi Kabakov, búlgarski dómari leiksins, gaf honum seinna gula spjaldið fyrir fagnaðarlætin.

Tíu Ísraelar héldu út allt þar til á lokakaflanum, þegar heimamönnum tókst að bæta tveimur mörkum við leikinn og tryggja 3-1 sigur.

Í D-deildinni náði Andorra forystunni á heimavelli gegn Möltu en endaði á að tapa 1-2 á meðan Litháen hafði betur gegn Liechtenstein.

Kósovó 1 - 0 Írland
1-0 Vedat Muriqi ('83 )

Austurríki 3 - 1 Ísrael
1-0 Romano Schmid ('43 , víti)
1-1 Sayed Abu Farkhi ('55 )
2-1 Phillipp Mwene ('90 )
3-1 Sasa Kalajdzic ('92 )
Rautt spjald: Sayed Abu Farkhi, Israel ('56)

Andorra 1 - 2 Malta
1-0 Guillaume Lopez ('17 )
1-1 Irvin Cardona ('36 )
1-2 Teddy Teuma ('81 )
1-2 Ilyas Chouaref ('85 , Misnotað víti)

Liechtenstein 0 - 2 Litháen
0-1 Lukas Michelbrink ('53 )
0-2 Artur Dolznikov ('66 )
Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.