24.09.26 - 20:03
Ívan Guðjón Baldursson
„Skoraði yfir 70 mörk, vann þrjá titla og komst í tvenn undanúrslit"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands er að gera sína menn klára fyrir stórleik gegn heimsmeisturum Spánar sem fer fram á laugardaginn.

TENGT EFNI
Kane: Yamal og Olise áttu frábært tímabil
Tuchel svaraði ýmsum spurningum frá ITV Sport og ræddi meðal annars Ballon d'Or, þar sem Harry Kane er eini Englendingurinn sem á raunhæfa möguleika á verðlaununum þó að Jude Bellingham og Declan Rice komi einnig til greina.
„Harry Kane á skilið að vinna Ballon d'Or þetta árið, það er klárt mál. Hann skoraði yfir 70 mörk, hann vann þrjá titla með FC Bayern og komst í undanúrslit heimsmeistaramótsins og Meistaradeildarinnar, svo já. Hann á skilið að vinna," sagði Tuchel.
Lamine Yamal og Kylian Mbappé eru taldir líklegastir til að hreppa verðlaunin í ár en Khvicha Kvaratskhelia, Erling Haaland og núverandi verðlaunahafinn Ousmane Dembélé koma einnig til greina ásamt Michael Olise, Fabián Ruiz og fleirum sem náðu margir hverjir mögnuðum árangri á síðustu leiktíð.
Kane er 33 ára gamall og er kominn með 6 mörk og 1 stoðsendingu í 7 fyrstu leikjunum með FC Bayern á nýrri leiktíð.
Hann skoraði 61 mark og gaf 7 stoðsendingar í 51 leik með Bayern á síðustu leiktíð, auk þess að skora 11 sinnum og leggja einu sinni upp í 12 landsleikjum með Englandi.