Fotbolti.net
20.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kane bætti gamalt markamet í þýsku deildinni

Kane bætti gamalt markamet í þýsku deildinni
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane skoraði tvennu í stórsigri FC Bayern gegn Union Berlin í þýsku deildinni á föstudagskvöldið og bætti þar með markamet.
Kane staðfestir viðræður
TENGT EFNI

Kane staðfestir viðræður

Enski landsliðsfyrirliðinn skoraði fyrst úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og setti seinna markið með skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Michael Olise. Lokatölur urðu 7-0 og setti Olise þrennu.

Hann er nú orðinn fljótasti leikmaður sögunnar til að skora 100 mörk í deildinni, það tókst honum í 98 leikjum.

Kane er í raun kominn með 101 mark eftir tvennuna, en hann hrifsaði þetta markamet af Dieter Müller sem skoraði 100 mörk í 129 leikjum. Hann setti metið 1977 og það hafði því staðið í rétt tæplega 50 ár þegar Kane bætti það.

Til samanburðar tók það Robert Lewandowski 168 leiki að skora 100 mörk, en hann var aðeins 22 ára þegar hann kom fyrst í deildina og lék með Borussia Dortmund. Lewandowski var 26 ára þegar hann skipti til Bayern og tók það hann 120 leiki að skora 100 deildarmörk fyrir stórveldið.

„Gat þessi krakkaskítur hjá Barcelona ekki bara haldið kjafti?“
TENGT EFNI

„Gat þessi krakkaskítur hjá Barcelona ekki bara haldið kjafti?“

Kane bætti gamalt markamet í þýsku deildinni
Canon

Mynd: EPA

Kane bætti gamalt markamet í þýsku deildinni
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Freiburg5+1013
2Dortmund5+713
3Bayern5+1211
4Leverkusen5+610
5RB Leipzig5+109
6Augsburg5+58
7Werder508
8Mainz5+37
9Elversberg507
10Köln5-27
11Stuttgart5-16
12Hamburger5-106
13Schalke 045-25
14Frankfurt5-75
15Paderborn5-44
16Union Berlin5-124
17Hoffenheim5-43
18Gladbach5-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.