Fotbolti.net
24.09.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Yamal svarar Mbappé: Skiptir ekki máli hvað þú skorar mikið

Yamal svarar Mbappé: Skiptir ekki máli hvað þú skorar mikið
Canon

Mynd: EPA

Ungstirnið Lamine Yamal er í fjölmiðlastríði við Kylian Mbappé þessa dagana þar sem þeir eru meðal leikmanna sem keppast um að vinna Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu.
Mbappe: Svona er að vera keppnismanneskja
TENGT EFNI

Mbappe: Svona er að vera keppnismanneskja

Mbappé sagðist á dögunum telja sjálfan sig vera líklegan sigurvegara eftir að hafa endað markahæstur í öllum stærstu keppnum síðustu leiktíðar. Mbappé skoraði flest mörk allra í spænsku deildinni, Meistaradeildinni og á heimsmeistaramótinu. Hann vann þó ekki til liðsverðlauna, hvorki með Real Madrid né Frakklandi.

Yamal skoraði ekki næstum því jafn mikið en sinnti lykilhlutverki hjá Barcelona og spænska landsliðinu er hann varð bæði Spánarmeistari og heimsmeistari.

„Að mínu mati hefur Ballon d'Or ekkert með markaskorun að gera," sagði Yamal við France Football. „Ballon d'Or eru verðlaun fyrir besta leikmann ársins, einstakan leikmann sem veitir áhorfendum gleði með leikstíl sínum. Þetta eru verðlaun sem eru veitt leikmanni sem lætur þig kveikja á fótboltaleik bara til að horfa á hann spila.

„Þegar ég hugsa um Ballon d'Or þá hugsa ég um leikmenn eins og Messi og Ronaldinho, leikmenn sem eru öðruvísi og færa manni bros með því hvernig þeir spila."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.