Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. október 2020 13:16
Aksentije Milisic
Byrjunarlið Fulham og Palace: Mitrovic og Batshuayi leiða framlínurnar
Mynd: Getty Images
Fulham og Crystal Palace mætast í öðrum leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og fer leikurinn fram á Craven Cottage.

Fulham var óheppið að vinna ekki Sheffield United í síðustu umferð en leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Aleksandar Mitrovic klúðraði vítaspyrnu fyrir Fulham.

Crystal Palace gerði einnig 1-1 jafntefli í síðustu umferð. Liðið fékk þá Brighton í heimsókn og skoruðu gestirnir jöfnunarmarkið seint í leiknum. Wilfried Zaha skoraði fyrir Palace úr vítaspyrnu.

Hjá Fulham byrjar Loftus Cheek inn á en hann kom til liðsins frá Chelsea fyrir tímabilið.

Hjá gestunum í Palace kemur Luka Milivojevic inn í liðið og þá byrjar Michy Batshuayi frammi.

Fulham: Guaita, Clyne, Kouyate, Dann, Mitchell, Townsend, Milivojevic, Riedewald, Schlupp; Zaha, Batshuayi.

Crystal Palace: Areola, Aina, Adarabioyo, Ream, Robinson, Lemina, Zambo Anguissa, Cairney, Loftus-Cheek, Lookman, Mitrovic.
Athugasemdir
banner
banner
banner