Fotbolti.net
12.09.26 - 19:09
Stefán Marteinn Ólafsson

Einkunnir í bikarúrslitum kvenna - Mollee Swift frábær á öðrum fætinum

Mollee Swift átti frábæran leik í marki Þróttar í dag.

Mollee Swift átti frábæran leik í marki Þróttar í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn

Þróttur varð Mjólkurbikarmeistari kvenna 2026 í dag eftir 2-1 sigur á Grindavík/Njarðvík í úrslitum. Ása Björg Einarsdóttir kom Grindavík/Njarðvík yfir í leiknum en Sæunn Björnsdóttir og Unnur Dóra Bergsdóttir snéru leiknum við fyrir Þrótt og þar við sat. 

Mollee Swift var maður leiksins að okkar mati en hún átti lykilvörslur,  flottan leik og það allt á öðrum fæti! 

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 2 Þróttur R.

Grindavík/Njarðvík: 

Taylor Fox - 7

Steig virkilega vel inn í þegar þess þurfti. Fór í rétt horn í vítinu en það var alveg út við stöng og lítið sem Taylor Fox gat gert við því. Frábær sókn Þróttara kláraði svo leikinn en Taylor getur verið stolt af sinni frammistöðu.

Ellie Coffield - 6

Var í barningnum á miðjunni í dag og skilaði þokkalegu verki. Barðist vel og lét fyrir sér finna.

Natasha Anasi - 6

Stýrði vörn Gri/Nja virkilega vel heilt yfir í leiknum. Þær þurftu að verjast svolítið í upphafi leiks og gerðu það vel.

Birta Birgisdóttir (58’) - 5

Vann vel til baka og alltaf tilbúin að sækja hratt þegar tækifærin gáfust. 

Hannah McLaughlin - 5

Átti eina slæma sendingu til baka í fyrri hálfleik sem hefði getað kostað en slapp með það.  Varðist heilt yfir þokkalega í leiknum.

Sophia Faith Romine - 7

Fékk frábært færi til að koma Gri/Nja yfir sem gekk ekki en átti svo frábæra stoðsendingu í fyrsta markinu þegar það hefði verið vel skiljanlegt að skjóta en hún lagði boltann fyrir markið.

Ása Björg Einarsdóttir - 7

Skoraði fyrsta mark leiksins á fjærstönginni eftir flottan undirbúning frá Sophia Faith Romine. Yfirveguð þegar hún lagði boltann í fjærhornið. Datt svolítið niður eftir markið.

Elísa Birta Einarsdóttir (84’) - 4

Því miður, var dæmd brotleg innan teigs sem gaf Þrótti vítaspyrnu sem þær skoruðu úr til að jafna leikinn. Hafði átt fínasta leik fram að því en þetta gaf Þrótti líflínuna sem þær tóku fegins hendi.

Sigríður Emma Jónsdóttir - 6

Fyrirliðin varðist ágætlega lengst af í dag og var oft að bera boltann úr vörn Gri/Nja með misjöfnum árangri.

Júlía Ruth Thasaphong  (58’) - 5

Hljóp og var dugleg að elta bolta frammi en fékk ekki úr miklu að moða sóknarlega. Fékk gult spjald fyrir samstuð við Mollee Swift áður en henni var svo skipt af velli.

Emma Nicole Phillips - 5

Skallaði þó nokkra bolta frá í dag og átti ágætis leik aftast. Var færð framar þegar Gri/Nja leitaði af marki en það kom lítið úr því.

Varamenn:

Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (58’) - 5

Tinna Hrönn Einarsdóttir  (58’) - 6

Kom inn með krafti og var nálægt því að leggja upp í leiknum en færið fór forgörðum. Jafnaði vel baráttuna í leiknum. 

Santa Sanija Vuskane  - Spilaði of lítið 

Þróttur R. 

Mollee Swift - 8 (Maður leiksins)

Þurfti tvívegis í leiknum að fá aðhlynningu en tókst að komast í gegnum hann. Gat lítið gert í markinu sem Gri/Nja skoraði en átti flotta vörslu seinna í leiknum frá Sophia Faith Romine. Frábær á öðrum fætinum í dag. 

Mist Funadóttir - 6

Var eins og rennilás upp og niður vænginn. Hljóp virkilega mikið í dag og sýndi mikla vinnusemi.

Jelena Tinna Kujundzic  - 7

Var öflug í vörn Þróttara og stóð vaktina vel þegar þess þurfti. Lokaði á þó nokkrar aðgerðir Gri/Nja í leiknum.

Álfhildur Rósa Kjartansdóttir - 7

Fyrirliðinn fór fyrir sínu liði og var gríðarlega öflug í baráttunni á miðjunni. Gaf ekkert eftir sýndi frábært fordæmi með öflugri vinnusemi.

Kaitie Cousins - 7

Var að koma sér í stöður og reyna finna sendingar í gegnum vörn Gri/Nja með misjöfnum árangri. Var samt alltaf hættuleg þegar hún komst á boltann.

Björg Gunnlaugsdóttir (89’) - 7

Lagði upp sigurmark leiksins eftir frábæra sókn Þróttar. Virkilega vel gert og hún eins og allt lið Þróttara sýndi mikla vinnusemi í dag.

Sierra Marie Lelii (77') - 6

Átti nokkrar fínar fyrirgjafir en Þróttarar náðu þó ekki að gera sér mat úr því. 

María Eva Eyjólfsdóttir  - 6

Stóð sig með prýði í dag. Var ekki mjög áberandi í dag endilega en var alltaf klár þegar þess þurfti.

Kayla Marie Rollins #21(77’) - 6

Var ógnandi og lét vel fyrir sér finna fremst. Hélt varnarlínu Gri/Nja á tánnum en náði þó aldrei að koma sér í neitt alvöru færi.

Sæunn Björnsdóttir #23 - 7

Öryggið uppmálað á vítapunktinum og jafnaði leikinn fyrir Þrótt. Átti heilt yfir flottan dag og lét varnarmenn Gri/Nja alveg hafa fyrir sér.

Unnur Dóra Bergsdóttir - 7

Rak smiðshöggið á frábæra sókn Þróttara sem reyndist vera sigurmark markið í dag.  

Varamenn:

Þórdís Nanna Ágústsdóttir #19 (77’) - 6

Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir #22 (77’) - 6

Bríet Fjóla Bjarnadóttir - Spilaði ekki nóg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.