12.09.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikar kvenna: Þróttur meistari eftir dramatískan lokakafla

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grindavík/Njarðvík 1 - 2 Þróttur R.
1-0 Ása Björg Einarsdóttir ('69)
1-1 Sæunn Björnsdóttir ('76, víti)
1-2 Unnur Dóra Bergsdóttir ('82)
1-0 Ása Björg Einarsdóttir ('69)
1-1 Sæunn Björnsdóttir ('76, víti)
1-2 Unnur Dóra Bergsdóttir ('82)
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 2 Þróttur R.
Þróttur R. varð Mjólkurbikarmeistari í meistaraflokki kvenna með frábærum endurkomusigri gegn Grindavík/Njarðvík í dag.
Staðan var markalaus eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik. Þróttur byrjaði mun betur en Grindavík/Njarðvík tók yfir og komst nálægt því að ná forystunni, en staðan var markalaus í leikhlé.
Í síðari hálfleik var Grindavík/Njarðvík sterkari aðilinn þar til Ása Björg Einarsdóttir náði forystunni á 69. mínútu. Hún skoraði eftir undirbúning frá Sophia Romine en gleði Reyknesinga entist ekki lengi því Þróttarar fengu dæmda vítaspyrnu sjö mínútum síðar.
Sæunn Björnsdóttir skoraði af miklu öryggi af vítapunktinum og staðan því orðin jöfn, en sex mínútum síðar setti Unnur Dóra Bergsdóttir boltann í netið úr dauðafæri eftir frábæran bolta frá Björgu Gunnlaugsdóttur.
Grindavík/Njarðvík fékk færi til að jafna metin en Mollee Swift varði meistaralega til að bjarga sigri Þróttara og tryggja þeim bikarinn eftirsótta á Laugardalsvelli.
Lokatölur urðu 1-2 fyrir framan rúmlega 2000 manns. Þróttur er því Mjólkurbikarmeistari 2026.
Þetta er sögulegur sigur hjá Þrótti þar sem þetta er fyrsti stóri titill í sögu félagsins.