Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. október 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola um ummæli Conceicao: Kannski hefur hann rétt fyrir sér
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: Getty Images
Sergio Conceicao, þjálfari Porto í Portúgal, hafði orð á því á dögunum að framkoma Pep Guardiola í leik liðanna á dögunum hafi verið óásættanleg en spænski stjórinn svaraði fyrir sig í gær.

City vann Porto 3-1 er liðin mættust í Meistaradeildinni um miðja viku en Conceicao ræddi framkomu Guardiola eftir leikinn og virtist hann afar ósáttur.

Guardiola segist varla kannast við það en þvertók þó ekki fyrir að hafa farið yfir strikið.

„Við vildum ekki vera óþægilegir. Hann telur okkur hafa farið yfir strikið og kannski er það rétt hjá honum. Í hreinskilni sagt þá fannst mér það ekki og ég er mjög ánægður með hvernig við höguðum okkur allan leikinn en ef hann trúir þessu þá er það kannski rétt hjá honum," sagði Guardiola.

Sjá einnig:
Stjóri Porto all annað en sáttur með framkomu Guardiola
Athugasemdir
banner
banner