Fotbolti.net
24.11.17 - 14:35
Elvar Geir Magnússon

Kristinn Steindórs: Heyrði í Blikum en í raun bara FH sem kom til greina

Auglýsing
Kristinn Steindórsson.

Kristinn Steindórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Steindórsson er kominn heim til Íslands úr atvinnumennskunni en hann skrifaði undir samning við FH í dag.
„Ég komst að samkomulagi við Sundsvall um að ég fengi að fara. Svo hafði FH samband. Ég tel það gott fyrsta skref,\" segir Kristinn.

„Það var í raun bara FH sem kom til greina. Ég var hjá Óla í Blikum og við unnum vel saman. Það er mikill metnaður hjá FH. Eftir hálfgert vonbrigðatímabil í fyrra vilja þeir koma sér aftur á toppinn og ég vil taka þátt í því.\"

Kristinn er uppalinn hjá Breiðabliki. Höfðu Blikar samband?

„Ég heyrði aðeins í þeim en það fór ekkert lengra því mér leist vel á þetta hérna og vildi klára það.\"

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.