Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. nóvember 2021 19:35
Brynjar Ingi Erluson
„Stuðningsmenn Real Madrid viðbjóðslegir í garð Bale"
Gareth Bale
Gareth Bale
Mynd: Getty Images
Jonathan Barnett, umboðsmaður Gareth Bale, segir hegðun stuðningsmanna Real Madrid í garð leikmannsins viðbjóðslega en hann ræddi við fjölmiðla á flugvellinum í Madríd í dag.

Bale er ekki ofarlega á vinsældarlistanum í Madríd og hafa stuðningsmenn ítrekað kallað hann öllum illum nöfnum á æfingasvæði félagsins.

Velski landsliðsmaðurinn hefur ekkert spilað með liðinu síðustu vikur vegna meiðsla en mætti í landsliðsverkefni með liðinu í nóvember og meiddist aftur.

Barnett svaraði spurningum um stuðningsmennina og spurður út í þeirra skoðun á leikmanninum.

„Mér er sama. Af hverju ætti það að vera öðruvísi?" sagði Barnett og spurði.

„Þeir hafa verið viðbjóðslegir við Gareth Bale."

Samningur Bale gildir út þetta tímabil en það er ekki ljóst hvort hann verður áfram eða ekki.

„Við verðum að bíða og sjá. Hann býr hér og fjölskyldan með honum. Hann elskar Madríd," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner