Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fljúga beint frá Malmö inn í útvarpsþátt Fótbolta.net á X-inu 97,7 milli 12 og 14 í dag.
Freyr Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, verður gestur í þættinum.
Freyr mun fara yfir leikina gegn El Salvador og Kanada auk þess að ræða umspilið gegn Rúmeníu í mars.
Freyr Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, verður gestur í þættinum.
Freyr mun fara yfir leikina gegn El Salvador og Kanada auk þess að ræða umspilið gegn Rúmeníu í mars.
Kristinn Jóhannsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli, mun einnig ræða stöðuna á vellinum fyrir leikinn í mars.
Þá verður að venju farið vel yfir helstu fótboltafréttir vikunnar.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir