Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. janúar 2021 19:34
Brynjar Ingi Erluson
De Roon skýtur á Zlatan eftir sigurinn á Milan
Zlatan Ibrahimovic í leik með Milan
Zlatan Ibrahimovic í leik með Milan
Mynd: Getty Images
Marten de Roon, leikmaður Atalanta, býður hættunni heim með myndbandi sem hann birti á Twitter en þar gerir hann grín að sænska framherjanum Zlatan Ibrahimovic.

Atalanta vann öruggan 3-0 sigur á Milan um helgina þar sem Cristian Romero, Josip Ilicic og Duvan Zapata gerðu mörkin.

Leikmenn Milan vildu fá vítaspyrnu í síðari hálfleiknum en Zlatan fór að rífast við Zapata í kjölfarið og benti honum á mörkin hans væru fleiri en leikirnir hans Zapata.

De Roon ákvað nú að birta myndband á Twitter með orðum Zlatans og mörkunum þremur. Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner