Anthony Martial er mættur í læknisskoðun hjá Sevila en hann mun spila með liðinu á lánssamningi út tímabilið.
Manchester United samþykkti tilboð Sevilla í gær en engin klásúla er í samningnum um kaup.
Manchester United samþykkti tilboð Sevilla í gær en engin klásúla er í samningnum um kaup.
Spænska félagið mun borga laun Martial út tímabilið en hann tekur á sig launalækkun til að fara til Sevilla.
Martial hefur ekki verið í lykilhlutverki hjá United undanfarin ár en hann hefur til að mynda aðeins komið við sögu í 8 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Hann gekk til liðs við United frá Mónakó tímabilið 2015/16.
Athugasemdir