Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. febrúar 2020 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Andri í viðtali við heimasíðu Bologna: Hungraður í fleiri tækifæri
Andri Fannar Baldursson
Andri Fannar Baldursson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Fannar Baldursson spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Bologna í 1-1 jafnteflinu gegn Udinese í Seríu A um helgina en innkoma hans var afar öflug.

Andri er fæddur árið 2002 en Breiðablik lánaði hann til Bologna í janúar á síðasta ári áður en félagið keypti hann svo um sumarið.

Hann kom inná á 59. mínútu gegn Udinese um helgina og stóð sig vel að sögn ítalskra fjölmiðla. Andri ræddi við heimasíðu Bologna um eldskírnina.

„Þetta kom mér á óvart í fyrstu þegar ég fékk kallið en ég var klár í þetta og spenntur fyrir að fá tækifærið. Ég er ótrúlega ánægður með þetta. Ég ætla að halda áfram að bæta mig og er hungraður í fleiri tækifæri," sagði Andri.

„Kærastan mín, fjölskyldan og allir óskuðu mér til hamingju og ég kunni að meta það."

„Ég hef verið með boltann við fæturnar frá blautu barnsbeini og foreldrar mínir sendu mig á fótboltaæfingar þegar ég var fimm ára."

„Mér líst vel á borgina og félagið. Það kom mér á óvart og ég elska þetta. Það hafa allir tekið vel á móti mér hérna,"
sagði hann ennfremur en hægt er að horfa á viðtalið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner